23.7.2006
Jóhanna skírari [drengurinn nefndur]
Nýjasti meðlimurinn hefur fram til þessa verið kallaður "litli brór" af sér eldra og reyndara smáfólki. Nú er hins vegar búið að finna nafn á snáðann, en áherslan var á að nafnið skyldi vera lýsandi og kjarnyrt. Hann er núna betur þekktur sem "ælusnáðinn"! Foreldrarnir hafa tæpa viku til koma með eitthvað betra, en kauði verður skírður fyrir hádegi á laugardaginn.
Í gær var heimsóknartími og gott fólk kom langt að; Hemmi og Freyja frá Danaveldi, en þeim fannst snáðinn lítlill og sætur. Þá komu líka Smári, MP og Mist alla leið úr Garðabæ og þeim fannst okkar maður líka lítill. En honum til varnar þá hefur vöxtur hans í % verið gríðarlegur undanfarið og nánast allt hans líf. Mjög gaman að fá allt þetta fólk í heimsókn til okkar.
Fyrir þá sem ekki vita þá er það heitasta í dag skíði & nudd - og helst í Japan. Must see:
En falin myndavél frá Japan þar sem koma fyrir skíjó og massagí er gersemi og algjör Schniiild.
Athugasemdir
Sæl og blessuð og takk fyrir síðast. Mér finnst ,,ælusnáðinn" ekki nógu gott nafn þegar til lengri tíma er litið, ekki víst að hann æli allt sitt líf- þó er aldrei að vita ...... efast ekki um að hann fái fallegt nafn sem hann verður stoltur af. Mætum úr Austurbrún stundvíslega kl. rúmlega 11. Hjá mér er gjafavika núna og er dálítið ,,steruð" þessa dagana en verð vonandi ekki til vandræða.
Fallegar myndir af fallegu börnunum ykkar.
Kv. Maja
Maja
Eggert J Levy og María Norðdahl, 25.7.2006 kl. 23:43
Hallo Jonni.
Er dálítið pirruð á þessum bláa manni sem fylgir mér og þó að hann sé fjallmyndarlegur þá er eitthvað sem ekki heillar.....
Það gekk svo vel hjá okkur um daginn að finna niðurhalið á netinu fyrir videóið þannig að kannski fæ ég smá tilsögn með hvort og þá hvernig ég næ þessum Blámann út og gæti e.t.v sett ynd af mínum sæta huggulega eiginmann í staðinn?
Heyrumst,
Maja
Eggert J Levy og María Norðdahl, 25.7.2006 kl. 23:53
Alveg skelfilegur!!!
Eggert J Levy og María Norðdahl, 26.7.2006 kl. 00:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.