Færsluflokkur: Bloggar
28.6.2006
Hlé á HM
Nú hefur verið gert nokkura daga hlé á HM knattspyrnu á meðan Jonni setur soninn inn í þennan skemmtilega leik. Við feðgar verðum tilbúnir í slaginn á föstudag, en þá má keppni hefjast á ný.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Jóhanna er mjög góð við litla barnið, enda er hann ekkert annað í hennar augum. Hún má til dæmis ekki heyra á það minnst að þetta sé strákur, hvað þá að hann sé bróðir hennar. JR er þó mjög ánægð með "litla barnið" og finnst gaman að skoða hann og klappa honum. Eftir að hennar fyrstu skoðun lauk þá hló hún mikið af því að "hún" er með rúsínuputta! JR tók einnig eftir því að hann var með mat í hárinu, sem var líka fyndið.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
27.6.2006
Myndir af Mr. Mini Me
Er svolítið að prufukeyra þetta vef system allt saman. Ýmislegt í boði sumt sniðugt fyrir mydnir og annað fyrir texta. Hérna þarf t.d. að setja inn eina mynd í einu, því hefur verið brugðið á það ráð að hafa myndirnar annars staðar.
Hérna eru myndir úr Hreiðrinu.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.6.2006
Fæðingardagurinn
26.06.06
Harpa missti vatnið kl 05.00 að morgni 26. júní 2006. Vorum að dúlla okkur heima við til rúmlega 10, þá höfðu verið samdrættir með reglulegu millibili síðan 06.00. Við skoðun sem lauk uppúr kl 11.00 var bara 3-4 í útvíkkun og langt í land að sögn sérfræðinga. Við vorum því sett inn í fæðingarherbergi og sagt að bíða þar. Fréttum að við ættum að vera þarna a.m.k. út vaktina (búin 16.00). En okkar maður var nú ekki til í svoleiðis. Enda allt komið á fulla ferð eftir skoðunina. Klukkan 12.25 hringdi Jonni bjöllunni og við spurðum hvort ekki væri hægt að fá smá aðstoð, enda verkir ekki lengur með millibili heldur stöðugir og rembingsþörf að geravart við sig og ég veit ekki hvað og hvað. Alla vega aðstoð barst, sænginni kippt undan frúnni og einhverju sterílu fæðingarkitti smellt á kantinn. Svo er bara að drífa sig úr brókunum og kíkja á stöðuna; útvíkkun lokið og okkar maður farinn að trana sér fram all verulega. Það sást aðeins í kollinn, svo kom nokkuð stórhluti í ljós og hið þriðja sinni kom höfuðið allt og búkurinn allur í kjölfarið. Takk fyrir kærlega, klukkan 12.43. Einfalt, fljótlegt og ég segi nú ekki gott en þarna var hann mættur í allri sinn dýrð. Honum fannst strax sniðugt að grenja svolítið og sína að hann kynni það. Síðan hefur hann verið voða rólegur og fínn. Allir komnir heim sólarhring síðar.
í tölum:
3505 grömm
52 sm langur
36 sm höfuðmál
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)